Fyrsta húsbílaferđ ársins
Myndir frá helginni







Þó það hafi nú lítið farið fyrir bloggfærslum í haust þá er nú ekki þar með sagt að ekkert hafi verið ferðast síðan í ágúst. Einhverra hluta vegna þá hef ég bara gleymt þessu ferðabloggi hérna, enda höfum við ekkert ferðast á húsbílnum síðan í haust.
Húsbíllin varð eftir í Danmörku í ágúst og þangað til í október en þá flaug Ingó til Danmerkur ásamt Íris Örnu, til að sækja húsbílinn. Þau flugu til Köben og þaðan með innanlandsflugi til Sönderborgar, til Þóru og Jóa. þar voru mamma og pabbi en þau voru að ljúka mánaðarferð um Evrópu á húsbílnum sínum.
Eftir stutt stopp í Danmörku fóru þau Ingó og Íris ásamt mömmu og pabba með Norrænu til Íslands. Ferðin gekk vel og voru þau komin heim um miðjan október.
Í lok september fór ég með Stínu og Sollu til Boston í 4 nátta ferð. Við lögðum af stað á fimmtudegi og komum aftur á þriðjudagsmorgni. Ferðin var skemmti- og verslunarferð þar sem við gistum á hóteli rétt hjá outletinu fyrir utan Boston. Við vorum með bíl allan tímann og rúntuðum um nágrannabæi Boston, kíktum í helstu búðir og veitingastaði og skemmtum okkur konunglega.
Hér eru myndir úr Bostonferðinni.
Um miðjan nóvember fórum við Sigursteinn til Danmerkur að sækja Gloríu, hundinn okkar, sem er búin að vera í pössun hjá Þóru síðan í ágúst. Við flugum til Kaupmannahafnar og tókum þar bílaleigubíl og keyrðum til Frederiksgard, sem er um 340 km leið. Það var mjög gaman að hitta aftur Gloríu og sjá hvað hún hefur stækkað mikið.
Hér er bloggið hennar Gloríu.
Ferðin gekk vel og eftir 4 daga viðdvöl í Danmörku héldum við af stað heim á leið með Gloríu, en hún þurfti að fara í frakt og fór svo beint í einangrun á Suðurnesjum.
Hér eru myndir frá Danmerkurferðinni.
Næst á dagskrá er skíðaferð til Kaprun í Austurríki, en við Snorri förum þangað á fimmtudaginn og verðum í 10 daga.
Þá er tíminn okkar í Austurríki liðinn og við erum komin aftur heim til Íslands, eftir ársdvöl í Ölpunum.
Síðustu vikur fórum við víða áður en við héldum af stað norður Þýskaland og til Danmerkur. Síðustu helgina í Kaprun komu Siggi bróðir, Erla og Lukka í heimsókn til okkar og við fórum m.a. með þeim í dýra-og skemmtigarðinn Ferleiten.
Hér eru myndir frá ferðinni
Þá helgi var mikil hátíð í bænum, Burgfest Kaprun. Fjöldi manns var út um allan bæ í miðaldarbúningum, skrúðganga, sölutjöld og mikið um að vera. Veðrið var ekki uppá það besta, rigning af og til, en fólk lét það ekkert á sig fá og skemmti sér vel. Á laugardagskvöldið fórum við á tónleika í kastalanum þar írsk tónlist var spiluð fram eftir kvöldi.
Hér eru myndir frá hátíðinni
Í lok júlí pökkuðum við svo saman dótinu okkar og héldum af stað norður Þýskaland þar sem við vorum búin að mæla okkur mót við Þóru systir og Sigga bróður og fjölskyldum þeirra. Við gistum á flottu tjaldstæði við norðurströnd Þýskalands og áttum góða helgi þar.
Hér eru myndir frá ferðinni
Við enduðum svo hjá Þóru og fjölskyldu í Danmörku og dvöldum hjá þeim í nokkra daga áður en við héldum heimleiðis. Ingó fór á Subarunum með Norrænu og ég fór með flugi með krakkana frá Billund. Gloría, hvolpurinn okkar, þurfti að vera eftir í Danmörku vegna þess að hún má ekki koma til Íslands fyrr en hún er orðin 7 mánaða. Þá fer hún í einangrun í mánuð áður en hún kemur til okkar.
Hér eru myndir frá Danmörku
Húsbíllinn er ennþá í Danmörku með öllu dótinu okkar og ég vonast til að fá hann heim um miðjan september. Það verður því lítið um ferðalög næstu vikur enda sumir búnir að fá nóg af ferðalögum í bili. Eða eins og Sigursteinn orðaði svo skemmtilega: "Mamma, getum við ekki farið í aaaaðeins styttra ferðalag næst... kannski bara svona eina helgi.... ekki í heilt ár". 
Það er dálítið skrítið að vera komin aftur heim til Íslands. Hið daglega líf hafið aftur. Ég er byrjuð að vinna í Sjálandsskóla og krakkarnir byrja í skólanum í næstu viku. Ég er strax farin að sakna Kaprun og Alpanna og bíð þess að komast aftur þangað út. Vonanandi verður það sem fyrst en þangað til mun ég ylja mér á minningum frá þessu skemmtilega og eftirminnilega ferðalagi sem stóð í heilt ár... sem var ótrúlega fljótt að líða.
Þangað til næst.... auf wiedersehn... 
eftir ársdvöl í Austurríki. Þessa síðustu daga höfum við verið mikið á flakki, skoðað ýmislegt sem við ætluðum að alltaf að skoða áður en við færum heim. Í dag fórum við t.d. í skoðunarferð um kastala í nágrenni Salzburgar, sem heitir Hohewerfen.


Og það er hálffyndið þegar kallinn er að taka myndir af eiginkonunni... og það sést ekkert í hana... gæti alveg verið hvaða kona sem er ...
hahaha....








Það er eiginlega of heitt til að ganga og innandyra sitjum við við viftuna, en það er ekki loftkæling í húsinu. En maður þorir nú ekki að kvarta undan hitastiginu... þetta er jú það sem við erum búin að bíða eftir þegar það rigndi sem mest í vor 









